Um okkur

Að baki Hrafnsvíkur ræktun stöndum við, Magnús og Hólmfríður. Við höfum brennandi áhuga á hundum og öllu því sem þeim viðkemur. Magnús er mikill áhugamaður um veiði og þá sérstaklega á gæsa- og andaveiðum. Þegar hann kynntist því að hafa með sér góðan veiðihund var ekki aftur snúið. Ljósavíkur Assa var hans fyrsti hundur og grunnurinn að okkar áhuga á að þjálfa góðan veiðihund og að rækta í smáum stíl. Við höfum brennandi áhuga á því að byggja upp og þjálfa góðan veiðihund sem að sjálfsögðu er einnig hinn besti félagi í dagsins amstri. Við höfum aflað okkur góða þekkingu á þjálfun veiðihunda. Magnús hefur sótt ófá námskeiðin, hérlendis og erlendis þar sem við bjuggum í Danmörku í tvö ár. Það var gríðarlega dýrmæt reynsla og fékk Magnús tækifæri til að taka þátt á A-prófum með Ross. Magnús hefur þjálfað frá grunni þrjá íslenska veiðimeistara og einnig haldið þónokkuð af námskeiðum hérlendis. Okkar labrador hundar eru af sterkum veiði-og vinnulínum og hafa mikinn vinnuvilja. Við leggjum samt sem áður mikla áherslu á yfirvegaða skapgerð, þar sem hundurinn er rólegur en tilbúinn að vinna þegar við á. Okkar hundar eru hluti af fjölskyldunni og frábærir heimilishundar sem taka þátt í okkar daglega lífi.

Allir okkar hundar eru skráðir í Hundaræktarfélag Íslands og standast allar heilsufarskröfur, ásamt þeim kröfum sem við gerum um skapgerð og vinnugetu.

Magnús og Hólmfríður